Heimferðin – Hressleiki og handfarangur
Sussubía, ótrúlega hressandi að þamba vodka heilt kvöld, vaka heila nótt og þurfa svo að pakka í ferðatösku og fara í rútu og flug! Við áttum miserfitt með þetta, Una átti í einna mestu basli. Við vorum kannski ekki alveg skýrastar á leiðinni, því við gleymdum einum hólknum með básnum í rútunni! Úff, jæja, við þurftum allavega ekki að sjá vonbrigðasvipinn á Adda stuð í þetta skiptið, þó að við höfum alveg getað ímyndað okkur hvernig hann yrði þegar hann læsi tölvupóstinn frá Valdísi... Innritunin gekk tiltölulega vel fyrir sig, það er að segja þegar Lilý var búin að plasta sundurtætta ferðatöskuna sína og Una búin að finna vegabréfið sitt, sem hafði á einhvern dularfullan hátt lent í stóru ferðatöskunni hennar! Á flugvellinum gátum við loksins verslað okkur einhverja minjagripi, maður skellti sér í túristahaminn og verslaði babúskur og fleira smálegt til að hafa einhverjar sannanir fyrir því að maður hefði jú komið til Rússlands. Flugið var ágætt, því við sváfum alla leiðina... ahh, það var ljúft. Ísland, fagra Ísland fagnaði okkur og við því! Vorum alltaf jafn skýrar og gleymdum að taka básinn af færibandinu í Leifsstöð, hvað er málið? Sem betur fer voru hólkarnir vel merktir svo það reddaðist. Við gistum eina nótt í Reykjavík, og fórum svo allar þrjár á Einkaleyfastofuna á föstudeginum til að leggja drög að áframhaldandi gengi nuddgallans! Vorum því á síðasta snúningi að fara í flugið... og eins og það væri ekki nógu slæmt voru Una og Valdís með svona fimmtíu og fimm handfarangursmuni! Svipurinn á flugvallarstarfsmönnunum... úff! Við hlupum með allt draslið út í flugvél, sem var að sjálfsögðu ekki venjuleg flugvél heldur pínulítið rör! Flugmennirnir báðu okkur náðarsamlegast að skilja eitthvað af draslinu eftir frammí og í öllum æsingnum tókst Valdísi óvart að opna fríhafnarskittlesið sitt sem dreifðist út um alla flugvél! Glataðar gellur púnktur is! En jæja, þetta hafðist á endanum og við komumst heim Til Akureyrar. Þvílik ferð, þvílik upplifun, þvílik skemmtun! Við eigum inni skoðunarferð um Moskvu, og það veit Guð að við ætlum að nýta okkur boðið!


<< Home